15. nóvember 2007 klukkan 18:07
Jæja, er ekki komin tími á smá færslu hérna, og í þetta sinn ætla ég nú bara að skrifa aðeins um líðandi daga. Siðustu helgi var Reunion hjá árgöngum ´83, ´84 og ´85. Þetta var bara hin mesta skemmtun, hittusmst nokkrir strákar hérna heima hjá mér um 4 leytið, og byrjuðum að sötra, leiðin lág svo á Rauða húsið á Eyrarbakka þar sem að allir hittust og fengu sér að éta, eftir það fórum við svo í Íþróttahúsið hér á Stokkseyri og hlustuðum á tónlist og spjölluðum. Þegar klukkan var orðin 09.30 hugsaði ég „jæja, á maður ekki bara að fara að haska sér á ballið“ svo leit ég á klukkuna og sá hvað tímanum leið, leist ekkert voðalega vel á það því að ég var orðin VEL ölvaður, en svo leit ég í kringum mig og gömlu skólafélagarnir voru sko ekkert skárri .. ! haha, þetta var snild, svo þegar klukkan sló eitthvað þá var farið á ball og skemmt sér konunglega, Bermúta spilaði fyrir dansi og komu þeir mér bara alveg ótrúlega á óvart þar sem að ég vissi ekkert hverjir þetta voru, þannig að þeir slóu í gegn. Ég fékk meira að segja að syngja í míkrafónin og alles, en ég ætla sko EKKI að fara nánar útí það hahaha... skemmtilegt kvöld.
Annars er maður bara að vinna og vinna, næstu helgi ætlum við hjúin til Reykjarvíkur, þar ætlum við að fara á ICE FITNESS með Heiðari fitneskóngi og unnustu hans og góðvinkonu okkar Maríu, eftir það ætlum við svo eitthvað gott út að borða .. hlakka til.
Eitt sem er að gerast í næstu viku... Danmörk – Ísland... smá pæling gagnvart þessu landsliði. Erum við að fara að skíta á okkur eða? Nú eru bæði Ívar Ingimars og Eiður Smári ekki með, er þetta að fara að há okkur eða eru þessir nýju leikmenn sem koma inn að fara að standa sig? Sko, málið með þetta landslið er að það vantar allt HJARTA í þessa leikmenn sem við eigum, það vantar þennan ÍSLENSKA VÍKINGA hugarfar í okkur að mínu mati, það er til staðar á móti þjóðum eins og Frökkum, Spánverjum, Ítölum og þessum stóru þjóðum sem virkilega geta eitthvað í fótbolta, en þegar við spilum á móti þessum prump liðum eins og Lichtenstein, þá bara gjörsamlega hrinur andinn yfir mönnum og við grút töpum 3-0 .. það er eins og þessir leikmenn hugsi bara „já, frábært strákar .. góður leikur í dag á móti Spánverjum, fyrst að við náum jafntefli á móti Spánverjum, þá þurfum við nú ekki að leggja okkur alveg alla fram í næsta leik á móti Lichtenstein, tökum þessu bara rólega og spilum á 50% getu... jæja.. nóg af þessu röfli .. förum á fyllerí..“ nei í alvöru, það þarf að fara að gera eitthvað í þessu, og þá meina ég að það þarf ekkert að reka þjálfarann fyrir hvert einasta tap sem við töpum, hann er ekki inná vellinum að elta tuðruna... ekki það að mér lýst alveg ótrúlega vel á nýja þjálfarann okkar, hann hefur náð þrusu árangri með FH og mér sýnist hann hafa hárrétt hugafar gagnvart þessu landsliði...
Gott í bili..
Valdimar Gylfason
06. nóvember 2007 klukkan 22:58
Jæææææja, ég vill byrja á því að þakka þeim sem ég hitti á balli um helgina fyrir síðast, þetta var náttúrulega snildar ball sko.
Ég var að vafra á www.mbl.is áðan og rakst líka á þessa skemmtilegur frétt eins og gerist stundum þegar maður vafrar þar. „Að sögn lögreglunnar á Akureyri ók flutningabifreið á hross rétt norðan við Hlíðarbæ um kl. 18 í kvöld með þeim afleiðingum að hrossið drapst. Ökumann sakaði ekki, en talsverðar skemmdir urðu á bifreiðinni. Lögregla segir hrossið hafa sloppið út úr girðingu frá nálægum bæ.“ Ég verð nú bara að segja að þetta vekur upp minningar frá árinu 2000 þegar ég átti leið fram hjá gömlu Borg sem var og hét hérna rétt fyrir utan Stokkseyri 15 ára gamall á jeppanum með mömmu frammí, þá fékk ég, naglinn sjálfur að keyra LandCruiserinn á eyrarbakk þar sem ég var að skutla kærustunni heim, SVAKA NAGLI, þessi ferð mín endaði ekki alveg eins og hún átti að enda, hún endaði nefnilega í DV. Þeir sem hafa ekki heyrt þessa sögu þá atvikaðist þannig að ég fékk s.s að keyra með því skilirði að ég myndi ekki segja pabba frá, ég settist undir stýri á beinskiptum LandCruisrnum við Kaðlastaði og setti í þann fyrsta brunaði af stað og gleymdi að setja háu ljósin á í kolniða myrkrinu, síðan var bara ekið á 80 km hraða og með NAGLA svipinn að sjálfsögðu á sínum stað, sem endaði með því að þurkast af andlitinu á mér á svipstundu því þegar að ég kom að gömlu Borg var þessi líka gríðar fallegi foli í vegkanntinum með faxið lafandi langt niður fyrir augu, ég sveigði yfir á hina akgreinina og hægði á mér, en það virtist ekki duga þar sem bykkjan hefur verið eitthvað áttavilt og kunni að sjálfsögðu ekki umferðareglurnar, engin endurskynsmerki eða neitt á kvikindinu, því að bykkjan rölti í makindum sínum yfir veginn og á hina akgreinina og endaði með trínið í aftari brettakanntinum á Cruisernum, dynkurinn sem kom var alveg dágóður og akkurat þá breyttist naglasvipurinn minn í algjörann aluasvip, ég var skelfingu lostinn, 15 ára gamall og þegar búinn að keyra á hross, en það skrítna við þetta allt saman var það að þegar dynkurinn kom snar nelgdi ég niður og mamma tók við stýrinu og keyrði nú aðeins til baka til að tékka á greyinu sem labbaði í veg fyrir mig! En bykkjan var HVERGI sjáanleg!! Magnað... mamma þurfti náttúrulega að tilkynna þetta til Lögreglunar og þetta endaði bara í DV !! ég á fréttina hérna heima ef þið viljið sjá hana. :-D
Látum þetta duga í bili ... hestar eru æðislegir... á eldhúsborðinu ...
LATER!!
Valdimar Gylfason
01. nóvember 2007 klukkan 20:29
Pólverjar á Íslandi... hvað er að gerast í þessu blessaða þjóðfélagi hérna, ég veit ekki hversu langt þetta á að ganga? Á þetta fólk bara að fá að koma inn í landið eins og ekkert sé? Ég verð að viðurkenna það að ég veit ekki hvernig þetta er í hinum norðurlöndunum, en mér finnst að það eigi að fara að takmarka aðgangin á þessu fólki inn í landið. Það eru fleirri ÞÚSUND innflitjenda í landinu í dag, sem er að vissuleiti gott þar sem þeir eru að vinna vinnu sem að margir og flest allir Íslendingar kæra sig ekki um að vinna, t.d. í fiskvinnslu og svo er talsvert mikið um að þeir eru í virkjunum og bara almennri smíðavinnu. Margir og flestir þeirra kunna ekki að tjá sig á íslensku og hvað þá ensku. Gott dæmi um það er að um daginn var ég að vinna í búðinni í Fossraf, þá bókstaflega óðu tveir menn inn bakdyrameginn og bara í gegnum búðina, annar þeirra var s.s. að leita sér að vinnu en málið var ekki alveg svo einfallt þar sem að hann gat bara engan vegin tjáð sig nema á pólsku, en hinn gaurinn sem var með honum var bara með honum til að tala fyrir hann, sá maður talaði bjagaða ensku sem erfitt var að skilja, hann var s.s. að sækja um vinnu fyrir þennan „mállausa“ mann. Hann sagði að sá „mállausi“ hefði áður fengist við störf tengd rafmagni og væri eitthvað „menntaður“ það eitt að þeir segjast vera menntaðir er eitthvað sem engin getur komist að þar sem að þeir eru frá póllandi þar sem að þeir kaupa sér réttindi eða bara einfaldlega prenta þau út á netinu. Ég sagði mönnunum nú bara að það væri bara best fyrir þá að koma eftir helgi þegar að yfirmaðurinn væri til staðar. En fyrir utan það hvað þetta var fáránlegt allt saman, þá hugsaði ég eftir á... í hvað er hægt að nota svona mann sem skilur EKKERT af því sem maður segir, það væri möguleiki að nota hann ef hann hefði þennan vin sinn með sér sem túlk, en það er kannski ekki alveg það sem maður færi að gera sem atvinnurekandi.
Mín skoðun er sú að annað hvort kemur þetta fólk inn í landið, og um leið og þeir koma fara þeir á íslenskunámskeið á vegum vinnuveitanda, og geta þar af leiðandi tekið þátt í venjulegum samskiptum og stundað vinnuna sína eins og hver annar íslendingur. Tekur tíma en samt, það kæmi með tímanum. Og svo er annað hægt að gera, taka fólk inn í landið sem skilur ensku og þá taka það inn í hópum, það kemur og tekur þátt í ákveðnu verkefni sem fyrirtækið er að fara í og þegar það er búið þá fara þeir heim aftur, eða þá að ákveða landvistartíma og þegar hann er búinn þá fara þeir aftur heim og svo kemur næsti hópur, með þessu þá eykst fjöldi útlendinga í landinu ekki.
En svo er annað, þegar þetta fólk er búið að vera á landinu í langan tíma eins og sumir hverjir, þá eru þeir kannski komnir með maka og annað sem er bara besta mál, þá þyrfti að finna einhverja góða lausn á því öllu saman. Ég vill taka það fram að ég er enginn fordómamaður i þessum málum en ég vill að sjálfsögðu ekki að landið fyllist að útlendingum frekar en hver annar maður að ég held. Endilega segið ykkar skoðun á þessu
Kv. Valli
Valdimar Gylfason
31. október 2007 klukkan 17:57
Koooomiði sæl og blessuð, hér með hef ég ákveðið að starta aftur .. blogghausinn ég, Valdimar Gylfason, ætla að setja mig í starholurnar og reyna að kasta fram hugsunum, pælingum og ýmislegu fleirru sem mér dettur í hug og tel mig þurfa að koma á framfæri... eða ekki... en allaveg þá ætla ég að gera mitt besta eeeeeða versta í því að blogga aðeins.
Ég veit nú ekki alveg tilhvers ég er að fara í þetta aftur, var kannski ekki alveg sá duglegasti í þessu hérna áður fyrr, en það má alltaf gera betur.
Þessa dagana geri ég nú ekki mikið annað en að vinna og aftur vinna, en það er líka bara fínt, mér finnst betra að hafa meira að gera heldur en minna. Ég er náttúrulega að vinna í fossraf og ofaná það þá er ég að aðstoða hann karl föður minn að byggja, er aðalega í rafmagninu þar, sem er bara fínt, en svo má ekki gleyma rúsínuni í pUlsuendanum sem er sá að ég er FIMLEIKAÞJÁLFARI... eða meira svona aðstoðar eitthvað.. Svo erum við hjúin að að selja og kaupa hús um þessar mundir sem þið kannski flest vitið. Afhverju skrifar maður alltaf um það sem allir vita nú þegar þegar maður er að blogga... það er nú eitt af því sem ég ákvað að ég ætlaði EKKI að gera á þessari síðu þegar ég ákvað að hella mér útí þetta,ég ætla frekar að skrifa eins og ég sagði hér áður, fyrr í þessu "bloggi" ... að skrifa pælingar og hugsanir mínar... það er mun áhugaverðara held ég þar sem allir sem koma til með að lesa þetta vita alveg hvað er í gangi í mínu og okkar lífi..
En þetta eru loka orðin í þessari færslu, enda bara svona smá sletta til að starta þessu ...
bless í bili
Valdimar Gylfason